Skólahljómsveit Grafarvogs
Sumarfrííð er rétt handan við hornið. En áður enn við leyfum okkur að fara í endanlegt sumarfrí, munum við hittast í Heiðmörk og kveðjast með lúðrablæstri.
Þann 9. júní kl. 18 - u.þ.b. 20, hittumst við í Heiðmörk, við Thorgeirstaðir sem er bústaður í eigu félaga norðmanna á Íslandi. Bústaðurinn er staðsettur 100-200 metrar fyrir innan Furulundi í Heiðmörk. Best er að leggja á bílastæði hjá Furulundi, labba áfram þessi 100 - 200 metrar, og beygja svo til vinstri inn í skóginn.
Öll börnin koma með systkini og foreldra með sér.
Þeir sem leika í hljómsveitum sem spiluðu á sumardaginn fyrsta koma með hljóðfæri og nótur (göngustatíf/ göngumappa í B/C sveit)
Einnig kemur hver fjölskylda með eitthvað á grillið og eitthvað að drekka fyrir sig.
Sveitirnar spila svo nokkur lög fyrir gestina.
Allir velkomnir, kennarar líka.










